Hvað er um að vera?
Við konurnar sem hittast á þriðjudögum er boðið að taka þátt í bústaðaferð með konur frá Akureyri. Helgina 5-6 maí. Hafið samband við Hönnu eða Astrid.
|
||
Sunnudaginn 12 feb kl.14.00 var samkirkjuleg stund haldin hér í hvítasunnukirkjunni. Stundinn var mjög vel sóttur.
Alla sunnudaga
klukkan 14:00 eru haldnar
Fjölskyldusamverustundir
í Hvítasunnukirkjunni
að Fagrahjalli 6.
Hér förum við yfir innihaldið í Lúkasarguðspjall 2: 1-20
|
Þetta er stund fyrir ALLA, unga sem aldna. Á þessum stundum gerum við ýmislegt, en fyrst og fremst lærum við um Jesú. Biblíusaga dagsins er sögð á einfaldan hátt og við syngjum sálma, kóra og barnalög. |
Í lok fjölskyldusamverustundarinnar (um 3 leytið) er tilvalið
að skoða bókasafnið okkar.
Bókasafnið geymir u.þ.b. 700 íslenska kristilega titla.
T.d. fræðirit, ljóðabækur,bænabækur, ævisögur, skáldskap og barnabækur.
Þú getur fengið lánaðar bækur þér að kostnaðarlausu.
Við bjóðum þig hjartanlega velkominn til okkur
Konuhópurinn er á þriðjudögum milli 13.00- 15.00
Nú árið er liðið í aldanna skaut
Nú árið er liðið í aldanna skaut
og aldrei það kemur til baka,
nú gengin er sérhver þess gleði og þraut,
það gjörvallt er runnið á eilífðar braut,
en minning þess víst skal þó vaka.
-
En hvers er að minnast og hvað er það þá,
-
sem helst skal í minningu geyma?
-
Nú allt er á fljúgandi ferð liðið hjá,
-
það flestallt er horfið í gleymskunnar sjá.
-
En miskunnsemd Guðs má ei gleyma.
-
Hún birtist á vori sem vermandi sól,
-
sem vöxtur í sumarsins blíðum,
-
í næðingum haustsins sem skjöldur og skjól,
-
sem skínandi himinn og gleðirík jól
-
í vetrarins helkuldahríðum.
-
Hún birtist og reynist sem blessunarlind
-
á blíðunnar sólfagra degi,
-
hún birtist sem lækning við böli og synd,
-
hún birtist þó skærast sem frelsarans mynd,
-
er lýsir oss lífsins á vegi.
-
Nú Guði sé lof fyrir gleðilegt ár
-
og góðar og frjósamar tíðir,
-
og Guði sé lof, því að grædd urðu sár,
-
og Guði sé lof, því að dögg urðu tár.
-
Allt breyttist í blessun um síðir.
-
Ó, gef þú oss, Drottinn, enn gleðilegt ár
-
og góðar og blessaðar tíðir,
-
gef himneska dögg gegnum harmanna tár,
-
gef himneskan frið fyrir lausnarans sár
-
og eilífan unað um síðir.
Nú árið er liðið í aldanna skaut er sálmur eftir séra Valdimar Bríem, sem hann orti árið 1886. Hann er gjarnan sunginn við lag eftir Andreas Peter Berggreen.
"Hattaparty"
Helgina 18-20 nóvember var konumót.
Gestir frá Akureyri var með okkur.
Allmenn samvera var í Loftstofunni.
Mættum flestir með handavinnu og við spjölluðm saman,
gestirnir sáu um að skemmta okkur.
Á laugardagskvöld borðuðm við pizzu saman
og héld áfram framm á rauða nótt!
Sunnudaginn kl. 14.00 var svo samkomu
niðri í sal og við kvöddum gestina með kaffi og afgöngum af gotteri.
Þetta var alveg meiriháttar blessuð helgi!
Hægt að lesa stutt ágrip um persónur í gamlatestamentinu
frá ingöngu í fyrirheitna landið fram að skiptingu þess í Norður og Suður ríki,
under valmöguleikan "það er gaman að læra"
Siðan er í vinnslu
17 ára afmæli Lindarinnar 