Stórmenni í Ísrael

Stutt ágrip um persónur í gamlatestamentinu frá ingöngu í fyrirheitna landið
fram að skiptingu þess í Norður og Suður ríki.

 1.Jósúa..

 ...leiddi fólkið inn í fyrirheitna landið sem Guð hafði gefið þeim. Fyrst voru 2 njósnara send  inn í landið, sem nefndist Kanan. Í landinu voru RISAR og borgir með háum varnamúrum kring. Ísraels fólk varð hrætt, þorði ekki inn.
 2. Rahab...

 ...átti heima í borginni Jerikó í landinu Kanan. Fólkið þar varð hrætt við Ísraelsþjóð því þau voru svo fjölmenn. Fólkið í Jerikó bað til hjáguða. En Rahab leyfði njósnurnum 2. að fela sig á húsþakinu sinu. Rahab og fjölskýlda hennar bjargaðist með hjálp rauðs spotta og Guðs aðstoðar þegar Ísraelsfólk hertók Jerikó og múrarnir hrundu.
   Jerikó var hruninn, næsta borg sem Ísraels þjóð átti að hertaka var Ai.
 3. Akan

 Guð hafði sagt að fólkið mátti ekki taka neitt með sér frá borginni. Akan sem var frá Júda ættkvísl sá margt sem hann hafði aldrei séð áður. Hann var óhlýðinn og tók falleg föt, gull og silfur. Vegna þess að Akan var óhlýðinn tapaði Ísrael.
 
  

                 
Mörg ár eru liðin. Ísraels þjóð er komin inn í landið sem Guð lofaði þeim þegar þau voru þrælar i Egyptalandi. En Guð hafur sagt fólkinu sinu að fara í stríð á móti borgum í land þar sem fólk dýrkaði aðra guði því það er bara einn Guð til. Guðs þjóð, Ísrael, átti ekki að blanda sér við fólk sem tilbað aðra Guði. En Ísraels þjóð hlýddi ekki orð Guðs. Þau áttu oft erfitt því óvinirnir voru sterkari.
  4. Gideon

 ...var af ættkvísl Manasse. Guð valdi hann til að stjórna her á móti óvinunum. Með því fyrsta sem Gideon gerði var að brjóta niður Baalsaltari sem pabbi hans átti. Með bara 300 manna her, lúðra, krúsir og eld vann Ísrael sigur á móti Midjanitum. Guð vildi kenna Ísraels fólk að gefast aldrei upp.
   Þegar Gideon dó byrjaði fólkið aftur að tilbiðja aðra Guði. Ísraels fólk var oft óhlyðið Guði. Guð elskaði fólkið samt en ekki það ljóta.
 5. Samson

 
... var af ættkvísl Dans. Guð sagði að foreldra hans mættu aldrei klippa hárið hans, því að styrkleiki Samson var í hárinu! Samson var útvalin af Guði. Samson hugsaði of mikið um sjálfan sig og gerði ekki eins og Guð óskaði. Hann lét plata sig þess vegna lenti hann og Ísraelsfólk í vandræðum.

 6. Rut

 ...vissi ekki hver Guð á himnum var þegar hún var stelpa því hún var ekki frá Ísrael. Seinna giftist hún manni þaðan. Þá lærði Rut hver Guð er. Þegar maðurinn hennar dó flutti Rut með mömmu hans /tengdamömmu sinni, sem hét Naomi. Þau fluttu til Betlehem. Rut hugsaði ekki um sjálfa sig heldur um Naomi sem var gömul. Rut sagði "þin Guð er minn Guð". Rut giftist Bóas sem var frændi Naomi. Þau eignuðust strák og nágrannakonurnar gáfu barninu nafnið -Óbeð. Óbeð er ættfaðir Jesús.
 

 Mörg ár eru liðin frá því að Gideon, Samson og Rut lifðu. Presturinn Elí sá um að þjóna og passa boðorðinn 10 og sáttmálsörkina. Það var í borginni Síló. Synir Elí voru vondir. Elí var orðin gamall og fólkið vildi fá nýa leiðtoga þau vildu ekki syni hans. Guð lofaði nýum leiðtoga en hann var ekki fæddur ennþá!
 7. Samúel

 ...var sonur Elkana og Hönnu. Hanna passaði Samúel heima hjá sér fyrstu árin en svo vissi hún að Guð ætlaði að nota Samúel á sérstakan hátt, strax þegar hann var ungur. Hlutverk Samúels var að búa með prestinum Elí. Þar talaði Guð við Samúel þó svo að hann var bara strákur. Samúel var strax spámaður Guðs. Samúel varð leiðtogi fyrir Ísrael allt sitt líf.
 8. Sál



 ...var fyrsti konungurinn sem var valin yfir Ísraelsþjóð. Guð setti próf fyrir Sál. Hann átti að biða með að fórna þangað til að Samúel var komin því að Samúel var spámaður og átti að segja Sál hvernig Guð vildi hafa það. En Sál gat ekki beðið og fórnaði sjálfur. Að því að hann gerði eins og hann sjálfur vildi tók Guð konungdóminn frá honum og sonum hans. Guð mundi sjálfur velja næsta kóng. 

 9. Davíð


 Samúel smurði Davíð til konungs þegar Davíð var ungur. Davíð barðist við risann Golíat sem var óvinur Ísraels. Risin Golíat montaði sig yfir því hvað hann var stór en Davíð gaf Guði heiðurinn, það var hann sem hjálpaði honum að sigrast á Golíat.
 10. Jónatan

 ...var sonur Sáls. Jónatan var besti vinur Davíðs. Jónatan gaf kirtillinn sin, sverðið sitt og bogann sin til Davíðs. Þeir gerðu fóstbræðralag. Þótt Jónatan væri prins var hann aldrei öfundsjúkur út í Davíð þó Davíð ætti að verða konungur eftir Sál.
 

...þurfti að fela sig því Sál konungur hataði Davíð. Davíð hafði ekki gert neitt rangt gegn Sál en Sál ætlaði samt að hefna sín á Davíð. Davíð var bara vinalegur við Sál, t.d. spilaði hann oft á hörpu fyrir hann.

...var maður eftir hjarta Guðs. Samt gerði Davíð ranga hluti. En hann bað til Guðs og sá eftir því sem hann gerði og fékk fyrirgefningu hjá Guði.
11. Davíð.

 

12. Salómon

 ...var einn af mörgum strákum sem Davíð átti en Guð valdi Salómon. Salómon mátti óska sér hvað sem var. Hann óskaði sér að Guð mundi gefa sér visku. Salómon byggði stóra musteri Guðs. Salómon hætti að vera auðmjúkur/ að gera vilja Guðs og varð hrokafullur. Hann eignaðist fullt með hestum og varð ríkasti maður heims. Hann átti fullt af konum, það var ámóti vilja Guðs. Þess vegna mátti enginn af sonum hans erfa kórónuna.
   

Ahía var spámaður sem Guð notaði til að sýna hvað mundi verða um Ísrael, landið sem Guð hafði gefið þjóð sinni. Ahía reif kirtillinn sinn i 12 búta.
Landið skiptist í tvennt.

 

 

 Norðurríki með 10 ættkvíslír nefndist Ísrael.

 

 Suðurríki með 2 ættkvislír nefndist Júda.


Í norðurríkinu átti Jeróbeam að stjórna og í suðurríki átti Rehabeam að stjórna.

Myndin er tekin úr bókinni:Libris Atlas till Bibelns kristenhetens historia. 1999. Sida 42

   
 13. Jeróbeam

 

 

Hvorki Jeróbeam né Rehabeam gátu stjórnað ríkinu því þeir gátu ekki stjórnað skapi sínu, þeir voru reiðir við Guð. Konungarnir Jeróbeam og Rehabeam byrjuðu vel en enduðu illa.

 14. Rehabeam


Astrid tók textin saman.
Myndirnar eru frá sunnudagaskólaefnið Steg för steg del 3, 1977 
(Copyrigh: Bibel club Movement, Inc., USA)





Flettingar í dag: 9
Gestir í dag: 4
Flettingar í gær: 26
Gestir í gær: 16
Samtals flettingar: 73427
Samtals gestir: 23798
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 06:10:36